Bílaumboðið Una leggur land undir fót og býður upp á reynsluakstur á alrafmögnuðum XPENG G6 á Akureyri föstudag og laugardag, 16.-17. maí. Þetta segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Viðtökur XPENG á Íslandi hafa verið framar vonum en nú þegar hafa 120 bílar verið afhendir síðan við kynntum XPENG fyrst á Íslandi sem var í september 2024. Mikið af fyrirspurnum hafa borist að norðan og við erum gífurlega spennt að koma og bjóða upp á reynsluakstur á Akureyri“ segir Þorgeir R. Pálsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Unu sem er umboðsaðili XPENG á Íslandi. XPENG hefur verið að hasla sér völl í Evrópu hratt að undaförnu og hafa byrjað sölu í flestum stærri mörkuðum álfunnar.
XPENG G6 reynsluakstur á Akureyri
Hvenær?
Föstudaginn 16. maí kl. 15-19
Laugardaginn 17. maí kl. 11-17
Hvar?
Við hleðslustöðvar ON á Glerártorgi
UMMÆLI