RAKEL gefur út nýtt lag – Plata væntanleg

RAKEL gefur út nýtt lag – Plata væntanleg

Tónlistarkonan Rakel Sigurðardóttir, RAKEL, gefur í dag út lagið rescue remedy. Lagið er það fyrsta sem Rakel gefur út af komandi plötu sinni, a place to be, sem er væntanleg í október. Rakel hefur skrifað undir samning við útgáfufyrirtækið OPIA Community sem gefur út plötuna.

RAKEL þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum enda hefur tónlist hennar reglulega ratað á topp vinsældarlista hér á landi, hún troðið upp með fjölmörgum þjóðþekktum tónlistarmönnum og hljómsveitum (s.s. Lón, Ceasetone, Nönnu, Damon Albarn, Kaktusi Einarssyni, Axel Flóvent o.fl.) og hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir tónlist sína.

Rakel leggur þessa dagana lokahönd á sína fyrstu plötu í fullri lengd, a place to be, og fyrsta smáskífan, „rescue remedy“, kemur út í dag. Um smáskífuna segir Rakel: 

„Fyrir mér er rescue remedy eins og hljóð frá einhverju sem er að losna, ekki með látum heldur einhverskonar mjúkt, innra hnjask. Það fæddist í milliástandi, ekki í sorg og ekki frelsi, heldur á mörkum þess að halda og sleppa.“

a place to be varð til á Stað í Hrútafirði, sveitabænum þar sem afi Rakelar ólst upp. Árið 1960 stofnaði hann, ásamt bróður sínum, vegasjoppuna Staðarskála. Þangað fór Rakel með SBA Norðurleið rútunni hvert einasta sumar unglingsára hennar til þess að selja pylsur og aðrar kræsingar. Það kom að því að Staðarskáli var seldur, þjóðvegurinn færður og Staður missti ákveðna merkingu fyrir Rakel. Fyrir nokkrum árum fór hún að finna fyrir söknuði til Staðar svo hún ákvað að fara þangað oftar í þeim tilgangi að semja lög. Afrakstur þessarra ferðalaga er einmitt þessi væntanlega plata.


Rakel í Gamla Staðarskála 2024, mynd frá Hákoni Bragasyni

Það fór svo að lokum að Rakel, ásamt fríðu föruneyti, endurvakti vegasjoppuna Staðarskála síðastliðið sumar, þar sem þau buðu upp á ástarpunga, kaffi og aðrar kræsingar fyrir svanga ferðalanga. Myndin sem prýðir umslag smáskífunnar er tekin úr gömlu fjölskyldualbúmi frá tímanum á Staðarskála, og þá stemningu reyndi hinn endurvakti skáli að fanga.

Danska tónlistarkonan og „próducer-inn“, Sara Flindt, ferðaðist með Rakel milli hljóðvera á Íslandi og Danmörku á þar sem þær tóku upp plötuna í skorpum yfir tvö ár. Lögin sjálf endurspegla þetta ferðalag. Þau leiða þig í gegnum ólík rými, sum raunveruleg en líka tilfinningaleg og sálræn rými innra með Rakel sem listamanni. Á a place to be kynnast hlustendur Rakel, „emo-stelpunni“ í unglingaherberginu sínu, „autotune synth-pop“ Rakel ráfandi um götur Reykjavíkur með heyrnartólin á höfðinu, og Rakel sem situr í tilfinningunum sínum á sófanum heima með með gítarinn. 

Á plötunni spilar einvala lið tónlistarfólks en þar má nefna Nönnu (Of Monsters and Men), Skúla Sverrisson, Kasper Staub (Lowly), Salóme Katrínu, Berg Þórisson, Björgu Brjánsdóttur og Ómar Guðjónsson. Platan er mixuð af Lukas Loeb og masteruð af Zino Mikorey.

Hlustaðu á lagið rescue remedy hér:

COMMENTS