Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Akureyrarbær gerir samning við Ferðamálafélag Hríseyjar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
samid-vid-ferdamalafelag-hriseyjar-til-arsins-2029-2000×1500-1
Linda María Ásgeirsdóttir, formaður ferðamálafélags Hríseyjar, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, undirrituðu samninginn.· kaffid.is

Í dag var undirritaður nýr samningur um stuðning Akureyrarbæjar við verkefni á vegum Ferðamálafélags Hríseyjar til ársins 2029. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar í dag.

Þar segir að markmið samningsins sé að efla Hrísey sem ferðamannastað og eftirsóknarverðan áfangastað allt árið um kring í samvinnu atvinnu-, menningar- og markaðsteymis Akureyrarbæjar og Ferðamálafélags Hríseyjar.

„Til að ná þessu markmiði verða þekking, frumkvæði og kraftur heimamanna nýtt með fulltingi þeirrar þekkingar sem teymið býr yfir á sviði markaðssetningar og upplýsingagjafar. Verkaskipting verður í grófum dráttum þannig að teymið annast markaðssetningu Hríseyjar sem áfangastaðar á landsvísu, en ferðamálafélagið sér um framkvæmd og þróun ferðaþjónustunnar í eyjunni,“ segir á Akureyri.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 11. nóvember 2026