Hagasteinn verður stærsti leikskóli Akureyrar

Stella Bryndís Karlsdóttir leikskólastjóri og Vala Björt Harðardóttir aðstoðarleikskólastjóri Hagasteins ræddu við heimasíðu Akureyrarbæjar í vikunni um nýja leikskólann sem hóf starfsemi í ágúst. Fjórar deildir eru nú starfandi á leikskólanum og fjórar til viðbótar verða opnaðar á nýju ári. Þegar allar deildir verða komnar í gagnið verður Hagasteinn stærsti leikskólinn á Akureyri.
„Við fengum tækifæri til að móta stefnuna frá upphafi og hanna gott umhverfi fyrir börn og starfsfólk. Hér er mikið pláss og rúmgóðar deildir, stór salur fyrir hreyfistundir og þjálfunarrými fyrir stoðþjónustu eða einfaldlega til að fá ró og næði. Birtan hér inni er falleg og gluggarnir hannaðir þannig að börnin sjá vel út. Útisvæðið verður líka frábært þegar það klárast. Hér fer vel um okkur.“
Hugmyndafræði Hagasteins er hæglæti, hugrekki og hlýja þar sem lögð er áhersla á velferð barna, réttindi þeirra, leik, tengsl og faglegt starf.
Tengdar greinar
Uppfært: 20. nóvember 2026










