MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Sögur úr Samkomuhúsinu: Varð allt vitlaust þegar Kjartan Póstur kom á svið

Eftir Ritstjórn·

Þegar leikkonan Sunna Borg ákvað að flytja til Akureyrar og gera eins árs samning við Leikfélag Akureyrar veltu samleikarar hennar í Þjóðleikhúsinu því fyrir sér hvað hún ætlaði sér að gera á Akureyri. Nokkrum mánuðum síðar bjargaði hún rekstri Leikfélagsins.

Þann 20. janúar næstkomandi eru 120 ár liðin frá því fyrsta leiksýningin var frumsýnd í Samkomuhúsinu. Að því tilefni ætlum við, á næstu vikum, að rifja upp nokkrar sögur úr 120 ára sögu Samkomuhússins. Sögurnar verða allskonar enda úr nægu að taka. Í þessari viku segir Sunna Borg okkur frá því þegar uppsetning á Kabarett í Sjallanum bjargaði rekstri Leikfélagsins.

„Það var náttúrulega dálítið gasalegt þegar að ég setti upp Kabarett. Ég var tilturulega nýkomin til Akureyrar þegar lokað var fyrir leikhúsið og slagbrandur settur á hurðina,“ segir Sunna Borg.

Sunna var að vinna í Þjóðleikhúsinu þegar hún fékk símtal frá leikhússtjóranum á Akureyri. Henni var boðið að koma norður og gera eins árs samning við Leikfélag Akureyrar. Móðir hennar er frá Akureyri en hvorki hún né Sunna höfðu búið í bænum þá. Móðir hennar var þó stödd á Akureyri á þessum tíma að sjá um aldraða ömmu Sunnu.

„Það voru allir svakalega hissa á því að ég ætlaði til Akureyrar. „Hvað ætlaru að gera þar Sunna?“ Mér einhvernveginn leið ekkert svakalega vel í Þjóðleikhúsinu á þessum árum. Ég er ekki sú eina sem hefur haft orð á því það voru einhver leiðindi, ekki góðir straumar svo ég sagði bara já takk.“

Árið 1979 flytur Sunna til Akureyrar. Hennar fyrsta hlutverk var í barnaleikriti þar sem að hún lék á móti Þránni Karlssyni.

„Góður maður sem hefur því miður kvatt okkur. Blessuð sé minning hans. Í þessu fyrsta leikriti var það eina sem ég gerði að koma inn á svið og segja „Hæ, komdu blessaður“ og þar með var hlutverkið búið en svo komu nú fleiri hlutverk. Þetta var það fyrsta sem ég gerði.“

Stuttu eftir komu Sunnu til Akureyrar er lokað fyrir leikhúsið vegna fjárhagserfiðleika og slagbrandur settur á hurð Samkomuhússins.

„Það voru bara ekki greiddir reikningar og mikil skuld og guð má vita hvað. Maður var ekkert að hugsa um það þegar maður er að leika í einhverjum leikritum og hérna þetta var nátturlega agalegt áfall og það voru margir sem hættu og fóru og ég var búin að vera þarna í eitthvað hálft ár ég man ekki alveg en allaveganna ég var búin að vera þarna stutt,“ segir Sunna.

Hún segir að henni hafi liðið vel á Akureyri á þessum tíma og að hún hafi ekki verið í þeim hugleiðingum að flytja aftur heim.

„Ég hugsa með mér að það verður bara að gera eitthvað og þá dettur mér það bara í hug að auglýsa eftir hugmyndum um einhverja svona smásketsa fyrir kabarett sem ég myndi setja upp og yrði sýnt, ekki í Samkomuhúsinu því það var lokað heldur niður í Sjallanum sem var þá alveg mjög eftirsóttur staður. Ég sendi þetta bara út í geiminn og það koma allskonar hugmyndir. Af öllum skemmtilegu hugmyndunum sem komu þá var einn aðili sem skaraði alveg fram úr. Það var alveg sama hvað hann kom með það var bara allt jafn fyndið og skemmtilegt, það var KA og Þór og Hagkaup og KEA og allt svona sem var að gerast hérna í bæjarfélaginu. Svo set ég þetta allt saman saman og fæ leikara og dansara og söngvara og allt sem því fylgdi og engin tók neitt greitt fyrir og svo var þetta opnað.“

„Ég vissi alveg að þetta var skemmtileg, ég var alveg klár á því, en maður veit aldrei alveg nákvæmlega hvað slær í gegn og hvað ekki, maður getur ekkert alltaf alveg fundið það út. Ég held að við höfum sýnt, ég man ekki alveg, tíu sýningar um helgar og alltaf troðandis fullt og ég man það bara að það komu inn, þarna var ekki búið að skipta um gengi, en það voru tvær milljónir sem komu inn og það nægði til þess að opna leikhúsið aftur og því hefur ekki verið lokað síðan og ég vona að það verði aldrei. Þá set ég bara upp annan Kabarett.“

„Þetta bara hitti bara í mark, það gerði það, og þetta var bara svona stutt og laggott. Það var ekki mikið af málaleggingum, ég er ekki fyrir það, ég vil bara hafa þetta hnitmiðað, mér finnst það bara langfyndnast. Þau voru bara svo góð, Kjartan Póstur til dæmis var góður maður hér í bænum. Það vissu allir hver Kjartan Póstur var og bara það að hann kom inn á sviðið það varð allt vitlaust. Hann hafði leikið mikið með Leikfélaginu áður og þetta var bara svakalegt fjör bara gaman.“

„Mér datt bara ekki í hug að vera að fara að gefast upp og flytja aftur til Reykjavíkur af því að mér leið bara ágætlega hér og eins og þú sérð, ég er hér enn. Mér líður vel hérna og það eru margar ástæður fyrir þvi.“

Lumar þú á skemmtilegri sögu eða minningu úr Samkomuhúsinu? Endilega hafðu samband á kaffid@kaffid.is. 

Þann 20. janúar 1907 fór fyrsta frumsýningin fram á fjölum Samkomuhússins. Leikfélag Akureyrar fagnar þessum tímamótum með einstakri hátíðardagskrá þar sem stiklað verður á stóru í 120 ára leiklistarsögu þessa fallega húss. Flutt verða lög og stuttar senur úr ástsælum sýningum á borð við My Fair Lady, Litlu hryllingsbúðina, Fjalla Eyvind og Deleríum Búbónis. 120 ára afmæli Samkomuhússins verður frumsýnt 20. janúar og alls verða sex sýningar á verkinu á tímabilinu 20. janúar 2027 til 6. febrúar 2027.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. nóvember 2026