Aldís Kara með besta árangur Íslands frá upphafi á Junior Grand PrixAldís Kara ásamt Darju þjálfara listhlaupadeildar SA að loknu skylduprógrammi.

Aldís Kara með besta árangur Íslands frá upphafi á Junior Grand Prix

Aldís Kara Bergsdóttir, listskautari hjá Skautafélagi Akureyrar, náði um helgina besta árangri íslenskra skautara á Junior Grand Prix sem fram fór í Ólympíu höllinni í Lake Placid, Bandaríkjunum.

Aldís náði 106,43 stigum sem kom henni í 20. sæti á þessu sterka móti. Þetta er besti árangur íslenskra skautara á þessari mótaröð frá upphafi, bæði í stigum og sæti. Einnig er þetta hennar besti árangur á móti erlendis þar sem hún bætti sig um tæp 3 stig frá Norðurlandamótinu frá því fyrr á þessu ári.

Ævinlega er keppt með tvö prógrömm, skylduprógramm og frjálst prógramm. Aldís náði flottum árangri í skylduæfingum þar sem hún hafnaði í 20. sæti af 32 með 39,28 stig og tækni stig 20,88. Í frjálsa prógramminu hafnaði hún í 21. sæti með 67,15 stig og tækni stig 33,0. Með þessum flottu stigum hafnaði hún, með samanlögð stigum, í 20. sæti með 106,43 stig. 

Hér má sjá skylduprógrammið:

Hér má sjá frjálsa prógrammið:

UMMÆLI

Sambíó