MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Sú fyrsta sem skrifar undir hjá kvennaliði KA

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Harpa Jóhannsdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er því fyrsti leikmaðurinn til að skrifa undir hjá nýstofnuðu kvennaliði KA. Greint er frá á vef félagsins í dag.

„Það er heldur betur við hæfi að Harpa sé fyrsti leikmaðurinn til að skrifa undir hjá okkar nýja liði en Harpa sem er uppalin hjá KA er gríðarlega öflugur félagsmaður en auk þess að hafa spilað með liði Þór/KA hefur hún verið ákaflega öflug í þjálfun yngriflokka KA frá unga aldri. Harpa er einnig mikill leiðtogi sem mun án nokkurs vafa drífa lið okkar áfram,“ segir í tilkynningu KA.

Harpa er 28 ára gömul og spilar sem markvörður. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 16 ára gömul sumarið 2014. Hún hefur alla tíð leikið fyrir norðan fyrir utan tíma hennar í New Jersey þar sem hún lék með Seton Hall Pirates á skólastyrk í Bandaríkjunum. Harpa lék einnig átta landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands.

„Undanfarin ár hafa tækifæri Hörpu hjá Þór/KA verið af skornum skammti og verður virkilega gaman að sjá til hennar á vellinum í gula og bláa búningnum. Koma Hörpu heim í KA er lykilskref í þeirri vegferð og erum við afar ánægð að hún sé sú fyrsta til að skrifa undir hjá liðinu. Stelpurnar hafa nú þegar verið að æfa undanfarnar vikur og eru frekari fréttir af leikmannamálum framundan næstu daga,“ segir á vef KA.

Tengdar greinar

Uppfært: 20. nóvember 2026