Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Leyni
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

KA vann Akureyrarslaginn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Mynd: Knattspyrnufélag Akureyrar á Facebook

KA og Þór mættust í Olís deild karla í handbolta í gær. KA hafði betur og vann að lokum öruggan sigur 30-35. Þórsarar leiddu 17-16 í hálfleik. KA menn mættu með krafti í seinni hálfleikinn og unnu að lokum fimm marka sigur.

Dagur Árni Heimisson átti frábæran leik fyrir KA og skoraði tólf mörk. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði sjö mörk.

Hafþór Már Vignisson ,William Skovager og Jóhann Geir Sævarsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Þór.

Bruno Bernat og Ágúst Elí Björgvinsson vörðu sautján bolta í marki KA. Nikola Radovanovic og Tristan Ylur Guðjónsson vörðu sjö bolta fyrir Þór.

Tengdar greinar

Uppfært: 23. nóvember 2026