Listdansskólinn Steps Dancecenter hélt glæsilegan dansviðburð á Akureyri síðastliðinn sunnudag þar sem fleiri hundruð gesta nutu þess að sjá nemendur skólans stíga á svið með krafti, sjálfstrausti og dansgleði.
Þema sýningarinnar var „Ooog akskjón – Leikstjórar okkar tíma“ þar sem nemendur frá 2ja ára aldri og yfir fimmtugt stigu á svið. Dansstílar á borð við jazz, contemporary, stepp og hip hop voru nýttir til að setja eftirminnilegar kvikmyndir og teiknimyndir, eins og til dæmis Moulin Rouge, Pulp Fiction, Top Gun og Kung Fu Panda, í dansbúning.



Dansinn gegnir sífellt stærra hlutverki í menningar- og íþróttalífi Akureyrar, þar sem hann sameinar líkamsrækt, skapandi tjáningu og samfélagslega tengingu. Steps Dancecenter hefur um árabil verið vettvangur fyrir börn og ungmenni til að blómstra í gegnum hreyfingu og list ásamt dansi fyrir fullorðna. Auk þess hefur Steps lagt sitt af mörkum til uppbyggingar menningarlífs bæjarins með fjölbreyttum verkefnum og sýningum.
„Við sjáum hvað dansinn hefur jákvæð áhrif – bæði á líkama og sál. Dansarar okkar styrkjast líkamlega, efla tjáningu, ná góðri samvinnu og læra að setja sér markmið. Þetta er menning, tómstundastarf og heilbrigð hreyfing í einu og sama formi,“ segir Guðrún Huld Gunnarsdóttir eigandi



Keppnisliðið hjá Steps hefur á síðustu vikum tekið þátt í undankeppni Dance World Cup og mun keppa á Global Dance Open næstu helgi. Stefnan er svo tekin á Global Dance Open sem haldið er í Birmingham síðar í sumar, þar sem keppnisliðið mun taka þátt í alþjóðlegri dansveislu með keppendum víðs vegar að úr heiminum.
Ljósmyndir teknar af Lindu Ólafsdóttur


COMMENTS