Amtsbókasafnið auglýsir eftir tilboðum

Amtsbókasafnið auglýsir eftir tilboðum

Amtsbókasafnið á Akureyri auglýsir eftir tilboðum í rekstur veitingastofu á 1. hæð safnsins frá 1. október 2025 til eins árs, með möguleika á þriggja ára framlengingu til viðbótar (til 31. september 2029). Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, þar segir einnig:

Veitingareksturinn er sjálfstæð eining en mikilvægur hluti af góðri heildarmynd Amtsbókasafnsins. Tilboðsgjafi skal leggja fram greinagóða lýsingu á því hvernig vöru- og þjónustuframboð hann hefur í huga að hafa á staðnum, ásamt tilboði í mánaðarlegt leiguverð aðstöðunnar.

Tilboðum skal skilað rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 27. ágúst 2025 kl. 13:00. Bjóðendum er boðið í vettvangsskoðun 13. ágúst nk. kl. 13, mæting er í anddyri Amtsbókasafns.

COMMENTS