Birnir Snær skrifar undir við KA út tímabiliðMynd/KA

Birnir Snær skrifar undir við KA út tímabilið

KA hefur borist liðsstyrkur fyrir síðari hluta sumarsins en Birnir Snær Ingason skrifaði í morgun undir samning út tímabilið. Birnir sem mætir norður frá sænska liðinu Halmstad er 28 ára gamall vængmaður sem KA bindur miklar vonir við að muni lyfta sóknarleik þeirra upp á hærra plan. Þetta kemur fram á vef KA, þar segir einnig:

Birnir vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína er hann lék með Víking og var meðal annars valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar sumarið 2023 er Víkingar unnu tvöfalt en Birnir skoraði 12 mörk og gaf 8 stoðsendingar í 25 deildarleikjum það sumarið. Þar áður lék hann með HK og Val auk uppeldisfélags síns Fjölni.

Birnir gekk í raðir sænska liðsins Halmstad í byrjun ársins 2024 en það árið gerði hann fjögur mörk í 26 deildarleikjum. Í ár hafa tækifærin verið færri og því afar spennandi tækifæri fyrir okkur KA-menn að fá þennan öfluga sóknarmann norður. Það eru krefjandi en á sama tíma spennandi verkefni framundan hjá liðinu en auk baráttunnar í Bestudeildinni mætir KA danska liðinu Silkeborg í Sambandsdeildinni 23. júní ytra og 31. júlí á heimavelli.

COMMENTS