80 ár eru liðin síðan kjarnorkusprengjur féllu á Hírósíma og Nagasaki, þar sem hundruðir þúsunda létu lífið. Því verður kertafleyting við Leirutjörn (við Minjasafnskirkju) til þess að minnast þessa atburðar þann í kvöld klukkan 22:00.
Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus heldur ræðu, ásamt því flytur Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir ljóð og tónlist.
Á Facebook-síðu viðburðarins segir:
„Við komum saman í kyrrð og samstöðu. Við minnumst fórnarlamba kjarnorkuofbeldis og horfum samtímis til nútímans: Sprengjurnar sem nú eyða Gazaborg eru af sama uppruna. Við munum minnast fórnarlamba á Gaza.“
Flotkerti seld á staðnum og fleytt en hluti af sölu á flotkertum rennur til almannaheillafélagsins Vonarbrúar


COMMENTS