Viðburður til styrktar BjarmahlíðarMynd/Bjarmahlid.is

Viðburður til styrktar Bjarmahlíðar

Viðburðurinn verður haldinn 31. ágúst í Sjálfsrækt að Brekkugötu 3 og þar verður boðið upp á jóga nidra undir leiðsögn systur Ölfu Jóhannsdóttur sem er menntaður jógakennari, skráning er á Facebook. Að sögn Amöndu var hún strax tilbúin til að leggja sitt af mörkum með því að gefa tíma sinn og þekkingu. Amanda Ásdís Jóhannsdóttir, sem skipuleggur viðburðinn, segist einnig afar þakklát Sjálfsrækt heilsumiðstöð fyrir að leggja salinn til og taka hugmyndinni opnum örmum. 

Þátttaka er öllum opin og án endurgjalds en við hvetjum fólk til að styrkja Bjarmahlíð ef það hefur tök á því og í leiðinni fara þá í pott í happdrætti með vinningum sem ýmsir aðilar hafa boðið fram – svo sem nudd, fótasnyrting, heilun með nuddi, ljósmyndunarsession svo eitthvað sé nefnt. Enn er opið fyrir fleiri styrktaraðila til að leggja sitt af mörkunum fyrir happdrættið, en hægt er að gera það með að hafa samband við Amöndu.

Markmiðið Amöndu með viðburðinum er að skapa umhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að stoppa aðeins, slaka á, tengjast sjálfu sér og öðrum og um leið styðja við mikilvæga þjónustu sem veitir fólki raunverulegan stuðning á erfiðum tímum.

„Ég er afar þakklát eins og fyrr segir og það er ótrúlegt hvað fólk er tilbúið að gefa fyrir gott málefni,“ segir Amanda.

Bjarmahlíð er mikilvægur viðkomustaður fyrir fólk sem hefur upplifað ofbeldi eða stendur nærri einhverjum sem hefur lent í því.

Að stíga fram og leita sér hjálpar getur verið ótrúlega erfitt skref. Margir koma inn í mikilli óvissu og vita ekki alveg hvert eigi að snúa sér. Í Bjarmahlíð er tekið á móti fólki með virðingu, hlustun og aðstæðum þess mætt af skilningi, án þess að dæma eða þrýsta. Bjarmahlíð er ekki bara úrræði heldur sendir þau skilaboð sem skipta mestu máli: Við sjáum þig. Þú ert ekki ein/nn. Við trúum þér og stöndum með þér.

„Mér finnst skipta máli að við vekjum athygli á þessu starfi, bendum öðrum á að þessi aðstoð sé til og styðjum það með þeim hætti sem við getum.  Með því erum við að leggja okkar af mörkum til samfélags sem tekur utan um fólk þegar það þarf á því að halda,“ segir Amanda að lokum. 

COMMENTS