Nýjasti leikmaður handknattleiksdeildar Þórs, Igor Chiseliov, er 33 ára gömul vinstri skytta sem gengur til liðs við Þór frá Radovis í Norður-Makedóníu. Hann hefur meðal annars spilað með félögum í Kósovó, Tyrklandi og í heimalandi sínu.
„Við bindum miklar vonir til nýjustu viðbót liðsins og erum spenntir að sjá hann á vellinum í vetur,“ segir á vef Þórs.


COMMENTS