Áramótabrenna Akureyringa verður á sama stað og í fyrra, á auðu svæði nokkru sunnan við golfskálann á Jaðri. Þar verður kveikt í brennu kl. 20.30 á gamlárskvöld, þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Árleg flugeldasýning verður á klöppunum norðan Pálmholts og hefst hún um kl. 21.00. Flugeldasýningin er í boði Björgunarsveitarinnar Súlur og Bílaleigu Akureyrar.
Hvatt er til þess að fara varlega með skotelda um áramótin og minnt á að hirða upp eftir sig flugeldarusl og koma í viðeigandi flokkun. Flugeldarusl má alls ekki fara í blandaðan heimilisúrgang. Sérstökum gámum fyrir það verður komið fyrir við verslanir Bónus í Naustahverfi og Langholti sem og við grenndarstöð norðan við Ráðhúsið.
Til glöggvunar þá er gönguleiðin frá bílastæðunum vestan Kjarnagötu um 800 metrar að brennunni og frá bílastæðinu við golfskálann að Jaðri um 700 metrar. Á meðfylgjandi loftmynd má sjá brennustæðið, svæði þar sem leggja má bifreiðum og gönguleiðir að brennunni.


COMMENTS