15. janúar er afmælisdagur Baldvins Rúnarssonar og af því tilefni hefur stjórn minningarsjóðs Baldvins ákveðið að úthluta einni milljón króna úr sjóðnum til Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON).
Styrknum er ætlað að styðja við Heilsueflingarsjóð KAON sem var stofnaður 15. janúar 2020 fyrir tilstuðlan framlags frá Minningarsjóði Baldvins. Með úthlutuninni í dag hefur minningarsjóðurinn nú lagt alls 3,5 milljónir króna í verkefnið.
„Síðan Heilsueflingarsjóðurinn var stofnaður í samstarfi við Minningarsjóð Baldvins hefur félagið geta boðið upp á ýmsa heilsueflingu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Yoga nidra námskeið hjá Sjálfsrækt hafa verið mjög vinsæl hjá okkur og geta bæði einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur mætt á þau námskeið.“ segir Marta Kristín Rósudóttir, verkefnastjóri hjá KAON og heldur áfram.
„Að auki hefur félagið boðið einstaklingum með krabbamein eða þeim sem eru í endurhæfingu upp á ræktarkort. Við erum þakklát fyrir stuðninginn.“
Krabbameinsfélagið reyndist Baldvini vel þegar hann háði sína baráttu. Það er afar mikilvægt að hafa öflugt krabbameinsfélag í heimabyggð sem styður á margvíslegan hátt við fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra.


COMMENTS