Tvær nýjar sýningar opna í Listasafninu á Akureyri

Tvær nýjar sýningar opna í Listasafninu á Akureyri

Laugardaginn 31. janúar kl. 15:00  verða tvær nýjar sýningar opnaðar á 4. hæð í Listasafninu á Akureyri.  Um er að ræða afar ólíkar sýningar eftir tvo listamenn sem eiga það sameiginlegt að tengjast Akureyri sterkum böndum. Í tilkynningu frá Listasafninu segir um sýningarnar tvær:

Guðmundur Ármann
Aðflæði / Influx
31.01.2026 – 03.05.2026
Listasafnið á Akureyri – Salir / Galleries 02 03 04 05                                                                                                                                           

Guðmundur Ármann (f. 1944) á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu. Hann hefur haldið 52 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Guðmundur lauk prentmyndasmíðanámi 1962, útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1966 og nam við Valand-listaháskólann í Gautaborg frá 1966 til 1972. Hann flutti til Akureyrar 1972 til að starfa sem myndlistarkennari, kláraði kennararéttindanám við Háskólann á Akureyri 2002 og lauk MEd-prófi í menntunarfræðum frá sama skóla 2013. 

Aðflæði er yfirlitssýning á 65 ára ferli Guðmundar og er elsta myndin frá 1970. Sýningin einkennist af fjölbreyttri leit listamannsins að túlkunarformi – frá raunsæi til abstrakts – þar sem mótífið hverfur smám saman uns eftir stendur einungis línan, formið og liturinn. Tvívíð myndlist – málverk, grafík og teikningar – eru í aðalhlutverki, en einnig má sjá nokkur þrívíð verk úr velktum viðarbútum sem rak á fjörurnar.

Sýningarstjóri: Magnús Helgason.

Björk Viggósdóttir

Hreyfing fyrir sjón / Movement for Vision

31.01.2026 – 03.05.2026
Listasafnið á Akureyri – Salur / Gallery 01

Björk Viggósdóttir fæddist á Akureyri 1982. Hún lauk BA-námi í myndlist 2006 frá Listaháskóla Íslands, stundaði meistaranám í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands og lauk námi í listkennslufræðum við Listaháskóla Íslands 2021.Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér á landi og víða erlendis, þar á meðal í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku, Evrópu og Asíu. Á meðal einkasýninga hennar á Íslandi má nefna Flugdreka í Listasafni Reykjavíkur, Óendanlega tilviljun í Þulu í Marshallhúsinu og Aðdráttarafl, hringlaga hreyfingu í Hafnarborg.

Björk skapar gagnvirkar upplifunarinnsetningar, þar sem eldri tækni blandast nútímatækni í myndlist. Listaverkin eru oft hlaðin táknmyndum og til dæmis sett saman úr fjölbreyttum efnivið. Björk nýtir gjarnan marga miðla í innsetningunum, t.d. myndbandshljóð og skúlptúr. Innsetningarnar mynda samhljóm milli efna og tækni í sjónrænni upplifun og kalla fram sterka skynjun í sýningarrýminu. Myndmálið er oft túlkað þannig að leikið er með öll skynfæri áhorfandans.

Galdur upplifunarinnar, krafturinn sem myndast þegar allir miðlarnir mynda samhljóm, magnast upp í hljóðfæraleik skynjunar þar sem hreyfing fyrir sjón verður í forgrunni.

COMMENTS