Jói Bjarki gefur út nýtt lag

Jói Bjarki gefur út nýtt lag

Tónlistarmaðurinn Jóhannes Bjarki Sigurðsson, Jói Bjarki, gaf í dag út nýtt lag sem ber heitið Kvíðadjöfull og er það aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.

Jói er fæddur og uppalinn á Hjalteyri í Eyjafirði en hefur búið á Akureyri öll sín fullorðins ár. Nú býr hann á Oddeyrinni með eiginkonu og þremur „börnum“. Tvö af þessum þremur eru orðin fullorðin og það eru þau sem eru með honum í nýja laginu. Berglind Líf er 22 ára og Davíð Máni 24 ára. Sjálfur er Jói orðinn 50 ára gamall. Um gerð lagsins segir Jói:

“Í október 2024 var beinagrind þessa lags orðin hugmynd. Á þeim tímapunkti var Berglind Líf, dóttir mín, í innlögn á geðdeild í fyrsta skipti á ævinni vegna ofsakvíða og vanlíðan tengd honum ásamt fleiri andlegum kvillum. Þessi barátta hennar (og okkar hinna í fjölskyldunni auðvitað) varð kveikjan að texta lagsins og fannst mér tilvalið að búa til texta sem endurspeglaði hennar líðan og upplifun á þessu gríðarlega erfiða tímabili sem stendur enn yfir þó allt sé á réttri leið. Baráttulag fyrir ofsakvíða sjúklinga og fólk sem er að berjast við andleg veikindi. Frá upphafi langaði mig að fá Berglindi Líf til að syngja inn á lagið og tókst það að lokum en hún er mikil áhugamanneskja um söng og tónlist. Það er bróðir hennar Davíð Máni líka. Hann hefur verið áberandi í grasrótarsenu rokksins á Akureyri síðustu árin og fékk ég hann til að spila inn fill-ins á rafmagnsgítar ásamt solo í lok lags. Ég var áður búinn að spila á kassagítara og eitthvað á rafmagnsgítar líka ásamt því að búa til bassalínu, syngja og radda. Allt var þetta unnið í heimastúdíóinu mínu þegar tími gafst til við mjög krefjandi aðstæður á heimilinu vegna veikinda dótturinnar. Þetta er frumraun mín í að gera allt sjálfur varðandi það að gefa út lag en áður hef ég gefið út 4 lög með aðstoð annarra.“

Hér er fyrir neðan má hlusta á lagið í gegnum Spotify.

COMMENTS