Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Þorsteins Hermanns Björnssonar sem banaði sambýliskonu sinni á Akureyri. Ákvörðunin byggir einkum á því að mikill munur var á niðurstöðum undirrétta en Héraðsdómur sakfelldi Þorstein fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða. Landsréttur breytti sakfellingunni í manndráp og þyngdi refsinguna um fjögur ár.
Verjandi Þorsteins krefst þess að málinu verði vísað frá eða sakfellt fyrir líkamsárás, þar sem verknaðarlýsing hafi verið óskýr og meta þurfi sönnunargögn og veikindi sakbornings betur. Hæstiréttur telur úrlausn málsins geta haft verulega almenna þýðingu.


COMMENTS