Dons Donuts verður á Akureyri um helgina

Dons Donuts verður á Akureyri um helgina

Hinir sívinsælu kleinuhringir frá Dons Donuts verða fáanlegir um helgina á Akureyri. Vagninn verður staðsettur á Ráðhústorginu og verður opið frá því klukkan 14 á föstudag og laugardag alveg fram á nótt. Á sunnudag verður opið frá klukkan 14 til um það bil 17 en um það leyti þurfa starfsmenn að pakka saman og halda aftur suður. Gísli Garðarsson, eigandi, er spenntur að koma norður og segir að það sé alltaf gaman að koma í heimabæinn og steikja kleinuhringi fyrir gesti og gangandi.

COMMENTS