Icevape færir reksturinn alfarið á netið

Icevape færir reksturinn alfarið á netið

Sérvöruverslunin Icevape, sem hefur verið starfrækt frá árinu 2015, hefur tilkynnt að versluninni á Strandgötu 9 á Akureyri verði lokað föstudaginn 20. febrúar næstkomandi. Rekstrinum er þó hvergi nærri lokið – hann færist nú alfarið yfir á netið.

Hjalti Ásgeirsson, eigandi Icevape, segir breytinguna vera spennandi og eðlilegt næsta skref í þróun fyrirtækisins.

„Fyrstu skrefin voru tekin árið 2015 þegar reksturinn hófst á netinu í smáum stíl. Í kjölfarið opnuðum við almenna verslun á Akureyri og þegar hún var opnuð var hún ein af fyrstu sérhæfðu vape-verslununum á Íslandi. Markmiðið frá upphafi hefur verið að bjóða upp á faglega þjónustu og vandað vöruúrval á góðu verði,“ segir Hjalti.

„Á síðustu misserum höfum við fundið fyrir verulegri aukningu í netverslun og breytingum á kaupvenjum viðskiptavina okkar. Með því að færa reksturinn alfarið yfir á netið getum við einfaldað starfsemina, lækkað fastan rekstrarkostnað og þannig skapað svigrúm til að bjóða betra verð og aukna þjónustu.“

Þótt verslunin á Strandgötu loki verður lager fyrirtækisins áfram staðsettur á Akureyri. Hjalti leggur áherslu á að þjónustustigið muni aukast fyrir íbúa á svæðinu sem og viðskiptavini um land allt.

„Við verðum áfram með lagerinn hér fyrir norðan. Það þýðir að Akureyringar og landsmenn allir geta pantað þegar þeim hentar, í stað þess að vera bundnir við opnunartíma verslunarinnar. Allar pantanir sem berast fyrir hádegi á virkum dögum verða afgreiddar samdægurs og má gera ráð fyrir að póstbox-sendingar innan Akureyrar verði að jafnaði tilbúnar til afhendingar sama dag,“ segir Hjalti að lokum.

Vefverslunin er opin allan sólarhringinn á Icevape.is, en síðasti opnunardagur verslunarinnar á Strandgötu verður föstudaginn 20. febrúar.

COMMENTS