Þann 8. mars kl 16:00 heiðrar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands tónskáldið Jón Nordal í Hofi.
Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því verða 100 ár liðin frá fæðingu hans á tónleikunum. Af því tilefni mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja tvær af perlum Jóns, Óttusöngva að vori fyrir tvo einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og hljómsveit. Einnig verður frumflutt verk eftir Akureyringinn Daníel Þorsteinsson.
Jón Nordal er eitt merkasta og eftirtektaverðasta tónskáld íslandssögunnar og vakti ungur athygli. Hann var t.a.m. aðeins 19 ára þegar fiðluverkið „Systurnar í Garðshorni“ var flutt á listamannaþinginu 1945.
60 manna Kór Akureyrarkirkju og tæplega 30 manna kórinn Hljómeyki koma fram ásamt Sinfóníuhljómsveitinni. Það er því óhætt að lofa magnaðri stund í Hofi.
Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands: Bjarni Frímann Bjarnason
Einsöngvarar: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir mezzo-sópran
Einleikari á selló: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.


COMMENTS