Ketilkaffi í sókn: „Við erum mjög þakklát Akureyringum“

Ketilkaffi í sókn: „Við erum mjög þakklát Akureyringum“

Það sem hófst sem hugmynd yfir kaffibolla við eldhúsborðið í heimahúsi fyrir nokkrum árum er í dag orðið einn af helstu samkomustöðum heimamanna á Akureyri – jafnt sem utansveitafólks og erlendra gesta. Þórunn Edda Magnúsdóttir og Eyþór Gylfason opnuðu kaffihúsið Ketilkaffi í anddyri Listasafnsins á Akureyri fyrir hartnær fimm árum síðan – og horfa björtum augum fram á veginn í kaffihúsarekstrinum. 

Áður höfðu þau bæði starfað lengi í veitingageiranum, hérlendis sem erlendis, og deila djúpstæðum áhuga á mat og drykk. Á Ketilkaffi leggja þau mikla áherslu á að bjóða upp á mat og bakkelsi sem þau gera frá grunni úr góðum hráefnum, sérvalið kaffi og heimilislega þjónustu. Auk þess hefur veisluþjónusta Ketilkaffis vaxið ásmegin á undanförnum misserum. 

Fréttaritari Kaffið.is ræddi við Þórunni og Eyþór, eigendur Ketilkaffis, um kaffihúsið, veisluþjónustuna og spennandi nýjung í tilefni af bolludeginum í ár. 

Höfðu oft spjallað um það að opna kaffihús við eldhúsborðið

„Það poppaði síðan upp auglýsing um útboð á kaffihúsarekstri í Listasafninu á Akureyri og við sóttum um í hálfgerðu bríaríi, búsett í Reykjavík og nýbúin að kaupa okkur íbúð. Við vorum í rauninni ekkert að hugsa okkur til hreyfings en lífið tók óvænta stefnu og nokkrum vikum síðar vorum við flutt til Akureyrar með fjölskylduna og búin að opna Ketilkaffi.“

Þórunn og Eyþór eru bæði frá Akureyri og það var alltaf inni í myndinni að þau myndu flytja aftur heim. Eftir að Ketilkaffi var sett á laggirnar hafa viðtökurnar farið fram úr þeirra björtustu vonum.

„Við erum mjög þakklát Akureyringum fyrir að taka svona vel á móti okkur. Nú eru liðin næstum fimm ár og reksturinn breyst mikið frá upphaflegri hugmynd, við þurftum að finna út hvað við gætum gert í rýminu, en við höldum ennþá í grunnhugmyndina sem var gott sérvalið kaffi og góður matur og bakkelsi, gert frá grunni úr góðum hráefnum.“

Bröns í sólinni

Staðsetningin í Listagilinu býður upp á ýmis spennandi tækifæri og eitt af einkennismerkjum Ketilkaffis er brönsinn, sem er í boði allan daginn og alla daga. Viðskiptavinir koma einnig oft aftur og aftur til að bragða á heimabakaða súrdeigsbrauðinu og fiskisúpunni, sem hefur verið á boðstólunum frá fyrsta degi. Það sama má segja um sítrónukökuna sem er viðeigandi sætur biti í eftirrétt með kaffibollanum.

„Strax fyrsta sumarið fundum við að hér þyrfti að vera morgunverðarstaður því sólin er hérna allan daginn á sumrin og aðlöguðum við matseðilinn eftir því. Brönsréttirnir okkar eru þeir vinsælustu á seðlinum, margar útgáfur af egg benedikt og ýmislegt fleira. Svo er kaffið okkar auðvitað mjög einkennandi og við leggjum mikla áherslu á að vanda okkur við að hella upp á hvern bolla, erum með frábæra espressóvél, kvörn og kaffibaunir í hæsta gæðaflokki frá vinum okkar í Kaffibrugghúsinu sem við höfum unnið með allt frá opnun staðarins.“

Ketilkaffi byggir á þeirri hugmynd að skapa samastað fyrir gesti og gangandi

„Við vildum búa til samfélag, þar sem fólk gæti komið og hist án þess beint að ætla að koma og hittast. Okkur finnst það hafa tekist og hér koma sumir viðskiptavinir daglega til þess að fá sér kaffi og spjalla saman áður en það heldur út í daginn.“

Þórunn og Eyþór segja frá því hvernig þau hafa lagt mikið upp úr því frá upphafi að halda matarsóun í lágmarki – og starfa enn í dag eftir því sjónarmiði. Með því að vinna með fá en vönduð hráefni sem nýtast á fjölbreyttan hátt í mismunandi rétti tekst þeim að hámarka nýtingu og lágmarka sóun.

„Við leggjum líka mikla áherslu á fallega framsetningu á mat og drykk og finnst það sérstaklega mikilvægt í ljósi þess hvar sem við erum staðsett í þessu fallega rými í Listasafninu.“

Veisluþjónustan styrkir stoðir rekstursins

Veisluþjónusta Ketilkaffis býður upp á ýmsa veislubakka, sem og að þjónusta brúðkaup og aðrar stórar veislur. Áhugasömum er bent á að skoða vefsíðuna ketilkaffi.is, þar sem má finna ný uppfærðar upplýsingar um allt það sem er í boði hjá veisluþjónustunni.

„Við erum farin að bjóða upp á úrval af spennandi kökum sem við höfum verið að þróa uppskriftir að á síðustu mánuðum, það er búið að vera nóg að gera í tilraunaeldhúsinu og smakkdeildinni undanfarið. Viðtökurnar hafa verið ótrúlegar og við erum mjög spennt fyrir framhaldinu á því.“

Eigendur Ketilkaffis horfa björtum augum á framtíðina

„Síðustu ár hafa verið mjög lærdómsrík og spennandi. Okkur líður eins og við höfum fundið taktinn með okkar hefðbundna seðil. Við höldum ótrauð áfram, viljum halda áfram að bjóða upp á fyrsta flokks kaffi, okkar sígildu rétti og láta okkur detta eitthvað nýtt og sniðugt í hug.“

Þau segja veitingabransann vitanlega vera árstíðabundinn og því verði spennandi að sjá hvernig veisluþjónustan heldur áfram að þróast.

„Það er mjög mikið að gera á sumrin, oft röð eftir borðum og líf og fjör. Svo kemur veturinn og þá færist lægð yfir reksturinn og þá er einmitt mjög gott að hafa möguleika eins og veisluþjónustuna til að hífa upp tekjurnar. Við erum mjög spennt fyrir því hvernig veisluþjónustan mun ganga á næstu mánuðum en nú er einmitt mikið veislutímabil framundan.“

Fólk er hvatt til að hafa samband tímanlega fyrir pantanir

„Við viljum nýta tækifærið og benda fólki á að hafa samband tímanlega ef það ætlar að panta af okkur kökur fyrir fermingar eða útskriftir. Þetta eru stórir veisludagar og við getum aðeins tekið takmarkað magn af pöntunum. Svo vonumst við eftir góðum skíðavetri, það er oft mikil stemning á kaffihúsinu þegar eru stórar skíðahelgar.“

Í lokin segjast Þórunn og Eyþór reyna að bjóða upp á nýjungar reglulega og í þetta skiptið bjóða þau upp á fylltar kleinuhringjabollur að pólskum sið í tilefni af bolludeginum. Boðið verður upp á þrjár mismunandi fyllingar; crème brûlée, ástaraldin og nútella/hindberja.

Bollu-hátíðarhöldin hófust fimmtudaginn 12. febrúar, sem er pólski bolludagurinn, og þeim lýkur á íslenska bolludaginn 16. febrúar. Lesendur Kaffið.is eru hvattir til að gera sér ferð á Ketilkaffi og ná sér í eina góða pólsk-ættaða bollu! Það er opið alla daga frá 8.00 til 17.00.

COMMENTS