Óðinn Svan hættir á RÚV og leiðir L-listann

Óðinn Svan hættir á RÚV og leiðir L-listann

Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson tilkynnti uppsögn sína frá RÚV í færslu á Facebook um hálf fjögur í gærdag. Óðinn hafði starfað hjá miðlinum í tæp sjö ár. Í samtali við Vísi sagði Óðinn það ekki liggja fyrir hvað hann myndi taka sér fyrir hendur en það myndi koma í ljós fljótlega þar sem hann gæti ekki verið atvinnulaus lengi með þrjú börn. Það leið ekki að löngu þar til fyriráætlanir Óðins komu í ljós en rétt rúmum klukkutíma síðar tilkynnti Akureyri.net að Óðinn myndi leiða L-listann í komandi bæjarstjórnarkosninum.

„Ég er Akureyringur í húð og hár og þekki það á eigin skinni hversu gott er að búa á Akureyri og ala upp börn í bænum. En það þarf að passa að bærinn okkar haldi áfram að vaxa og dafna og þess vegna langar mig að bjóða fram krafta mín í það verkefni,“ sagði Óðinn við akureyri.net í gær.

COMMENTS