Ný iðnaðarverslun opnar á Akureyri

Ný iðnaðarverslun opnar á Akureyri

Í dag opnaði ný verslun og þjónustumiðstöð að Baldursnesi 2 á Akureyri. Verslunin ber heitið Stálvörur. Um er að ræða samstarf nokkurra fyrirtækja sem ætla að bjóða fjölbreytta þjónustu og gæðavörur undir einu þaki. Markmiðið með opnuninni er að bjóða upp á persónulega þjónustu við viðskiptavini á landsbyggðinni þar sem sameinuð er sérþekking GA Smíðajárns, Veldix, Gastec og MHG verslunar. Verslunin er einnig söluskrifstofa fyrir GA Smíðajárn.

Verslunin mun bjóða upp á fjölbreytt úrval þar sem má finna allt frá iðnaðargasi og rekstrarvörum tengdum stáli og málmum yfir í vinsælar vörur frá Husqvarna, svo sem sláttutæki, snjóblásara, sagir, og margt fleira. Mikil áhersla verður lögð á góða þjónustu við tækin og verður boðið upp á viðhalds- og viðgerðaþjónustu á Akureyri.

Það eru þeir Eiður Arnar Pálmason, framkvæmdastjóri með áratuga reynslu í stálbransanum, og Trausti Hrafn Ólafsson sölufulltrúi sem munu standa vaktina. Verslunin er opin jafnt fyrir fyrirtæki sem einstaklinga og hvetja þeir fólk til að kíkja við enda sé sjón sögu ríkari.

Verslunin Stálvörur verður opin alla virka daga frá klukkan 08:00 til 17:00.

COMMENTS