Það vakti töluverða athygli í síðustu viku þegar fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson sagði starfi sínu lausu hjá RÚV og tilkynnti að hann hygðist leiða L-listann í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Við settumst niður með Óðni, sem hefur staðið í ströngu með fjölskyldu sinni undanfarna mánuði.
„Já, þetta kom mörgum á óvart, en kannski ekki mínum allra nánustu. Viðbrögðin hafa hins vegar verið frábær og ég hef fundið fyrir mikilli hvatningu úr ólíkum áttum eftir að við tilkynntum þetta,“ segir Óðin en L-listinn, sem er með þrjá bæjarfulltrúa af ellefu í bæjarstjórn, hefur verið í meirihluta síðustu sextán ár.
Krefjandi verkefni síðustu mánuði
Aðspurður hvað hafi orðið til þess að hann tók ákvörðunina segir Óðinn: „Þetta var ekki auðveld ákvörðun. Ég var í góðri vinnu sem ég naut í botn. Það hefur líka mikið gengið á hjá okkur fjölskyldunni síðustu mánuði og við þurftum að eiga gott samtal áður en ég ákvað að láta slag standa.“
Óhætt er að segja að verkefnin sem fjölskyldan hefur glímt við síðustu misseri hafi verið krefjandi. Í október á síðasta ári reið fyrsta áfallið yfir þegar Heiðdís Rósa, eiginkona Óðins, greindist með illkynja heilaæxli. Heiðdís og Óðinn eiga þrjú börn og hafa verið gift í 17 ár í sumar.
„Þetta er áfall sem ég hélt að kæmi aldrei fyrir mig eða mitt fólk. Heiðdís hafði um tíma fundið fyrir doða og undarlegum höfuðverkjum og var að lokum send í myndatöku þar sem í ljós kom stórt mein í höfðinu. Næstu vikur einkenndust af miklum biðtíma og hræðslu því það er enginn undirbúinn fyrir svona fréttir. Æxlið reyndist vera krabbamein á öðru stigi og í lok nóvember var framkvæmd stór og flókin skurðaðgerð þar sem ótrúlegum læknum tókst að fjarlægja stóran hluta þess í aðgerð sem tók rúma átta klukkutíma. Í byrjun árs tók svo við geislameðferð í Reykjavík sem gekk vel og næst á dagskrá er lyfjameðferð sem hún fær sem betur fer að taka hér á Akureyri. Það er algjör klisja en satt að segja breytir svona áfall sýn manns á lífið. Þú ferð að elska fólkið sem stendur þér næst enn meira og læra að meta hvað maður hefur gott bakland og fjölskylda skiptir miklu máli þegar fjallið sem þarf að klífa er svona hátt. Svo hefur verið ótrúlegt að fylgjast með konunni minni takast á við þetta verkefni af æðruleysi og styrk. Ég gæti ekki verið stoltari af henni.“


„Ofan í þetta þurfti sonur okkar, Bergur Logi, sem er sextán ára, að fara í hryggspengingu í desember. Það var stór aðgerð sem kostaði margar nætur á spítala í Reykjavík og mikla baráttu fyrir strákinn okkar. Hann er sem betur fer líkur mömmu sinni og hefur tekist á við þetta af miklum styrk.“
„Það er allt í lagi að vera stoltur Akureyringur“
En af hverju L-listinn?
„L-listinn hefur verið leiðandi afl í bæjarstjórn hér á Akureyri undanfarin ár og haft mikil áhrif á bæinn okkar frá stofnun. Það er frábært að búa á Akureyri og ég held að við ættum að fókusa meira á hvað margt er vel gert á Akureyri. Það er auðvitað margt sem má laga en við ættum að vera duglegri að tala um það sem vel er gert. Tala vel um bæinn okkar því ég held að það sé hvergi betra að búa og ala upp börn. Sumir myndu kannski kalla þetta norðlenskan hroka en það er allt í lagi í vera stoltur Akureyringur. Ég vil leggja mitt af mörkum og gera frábæran bæ enn betri,“ segir Óðinn að lokum.


COMMENTS