Knattspyrnu deild KA hefur tilkynnt að Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur skrifað undir nýjan samning og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027.
Hallgrímur er leikjahæsti leikmaður í sögu félagins með 378 leiki í deild, bikar, Evrópu og meistarakeppni KSÍ. Hann er einnig markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 125 mörk. Þá er hann leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild með 209 leiki auk þess að vera markahæsti leikmaður KA í efstu deild með 75 mörk. Sömuleiðis er hann markahæsti leikmaður KA í Evrópu en hann hefur nú gert 4 mörk í 8 Evrópuleikjum og enginn leikið fleiri Evrópuleiki fyrir KA.
Grímsi átti frábært tímabil á síðasta ári og var hann meðal annars kjörinn íþróttamaður KA fyrir árið 2025 og nú á dögunum var hann í fyrsta skiptið valinn í A-landslið Íslands sem mætir Mexíkó í vináttuleik í lok mánaðarins.
„Grímsi sem er 35 ára gamall hefur sýnt það og sannað á undanförnum árum að hann á nóg eftir og ef eitthvað er þá hefur hann haldið áfram að bæta í með hverju árinu. Hann hefur verið einn besti leikmaður Bestudeildarinnar undanfarin ár og verður virkilega gaman að sjá hann loksins fá tækifærið með landsliðinu í Mexíkó. Það eru gríðarlega jákvæðar fréttir að Grímsi sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og ljóst að hann mun halda áfram að endurskrifa sögu félagsins,“ segir á vef KA.


COMMENTS