Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri veitti á dögunum sex viðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag til jafnréttis, inngildingar og fjölbreytileika í samræmi við stefnu skólans. Viðurkenningarnar eru veittar félagasamtökum og einstaklingum úr háskólasamfélaginu sem hafa unnið að því að efla réttindi og sýnileika ólíkra hópa.
Eftirtaldir hlutu viðurkenningu árið 2026:
- Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor, fyrir rannsóknir og mótun nýrrar jafnréttisáætlunar HA.
- Ergi – Félag Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi, fyrir að skapa öruggt rými og auka sýnileika hinseginleika innan háskólans.
- Hrafnhildur Eggerz Haraldsdóttir, hjúkrunarfræðistúdent, fyrir framlag til fræðslu um kynvitund.
- Margrét Unnur Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðistúdent, fyrir vinnu við námskeið og ráðstefnur um jafnréttismál.
- Jóhannes Már Pétursson, formaður Alþjóðanefndar SHA, fyrir stuðning og hagsmunagæslu fyrir stúdenta af erlendum uppruna.
- Sara Stefánsdóttir, lektor, fyrir að þróa grunndiplómanám fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir.


COMMENTS