Metstraumur í skíðabrekkur um helgina

Metstraumur í skíðabrekkur um helgina

Mikill fjöldi landsmanna nýtir nú vetrarfrí skólanna til skíðaiðkunar og er mikill erill á skíðasvæðum á Norðurlandi. Aðsóknin í Hlíðarfjall á Akureyri var svo mikil um helgina að lögregla þurfti tímabundið að loka veginum upp í fjall og stýra umferð þar sem bílaröðin náði nánast niður í byggð.

Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, sagði í samtali við RÚV að aðstæður væru dásamlegar en benti á að bílastæðin væru helsti flöskuhálsinn þegar „allir“ mæta á sama tíma. Hann hvetur sveitarfélög til að samræma vetrarfrín betur til að dreifa álaginu, en búist er við áframhaldandi fjölda næstu daga.

Vegna annríkisins á Akureyri hafa margir leitað yfir á Dalvík. Hörður Finnbogason, umsjónarmaður á Böggvisstaðafjalli, segir í samtali við RÚV að þar sé draumafæri og að töluverður hópur hafi komið þangað beint úr traffíkinni á Akureyri. Spáin fyrir næstu daga er góð og útlit fyrir áframhaldandi skíðaveður um allt Norðurland.

COMMENTS