Akureyrarbær ásamt nágranna sveitarfélögunum Eyjarfjarðarsveit, Grenivík (Grýtubakkahreppur), Hörgársveit og Svalbarðseyri standa saman að vinnustofum fyrir íbúa sveitarfélaganna af erlendum uppruna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Fyrri vinnustofan fer fram laugardaginn 28. febrúar og hefst kl. 10 og stendur til kl. 16. Þar fer fram fræðsla um kosningarétt íbúa með erlent ríkisfang, stjórnmálakerfið með áherslu á sveitarstjórnarstigið, m.a. hlutverk sveitarstjórna, leiðir til að hafa áhrif á sveitarstjórnarmál og framkvæmd kosninga, þ.m.t. val kjósenda, útlit kjörseðla, gild og ógild atkvæði, kjörstaðir og fleira. Hádegismatur í boði.
Seinni vinnustofan fer fram sunnudaginn 1. mars og hefst kl. 13 og stendur til kl. 16:00. Þar fá þátttakendur tækifæri til að taka þátt í samfélagsmiðlaherferð undir slagorðinu Mitt Atkvæði – Mín Rödd / Þitt Atkvæði – Þín Rödd með gerð eigin Raddar-veggspjalda. Veggspjöldin verða síðan birt á Facebook svæði verkefnisins ásamt öðrum röddum víðsvegar að um landið. Börn eru velkomin á sunnudaginn með foreldrum sínum að teikna og lita.
Vinnustofurnar eru öllum opnar, óháð búsetutíma og ríkisborgararétti, og eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Verkefnið Mitt Atkvæði – Mín Rödd hefur tvívegis hlotið styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Markmið verkefnisins er því að skapa nokkurs konar lifandi „áttavita- og umræðu vettvang“ þar sem þátttakendur fá tækifæri til að átta sig á réttindum sínum og hvernig allt virkar.
Það var Kveiksþátturinn „26 þúsund raddir sem ekki heyrast“ sem varð innblástur að verkefninu en í þættinum var fjallað um takmarkaða kosningaþátttöku íbúa með erlendan bakgrunn í sveitarstjórnarkosningum árið 2022.



COMMENTS