Sólarpönk: Bjartsýnishátíð verður haldin 13.-15. mars í Deiglunni á Akureyri. Hátíðin samanstendur af listasmiðjum, vinnustofum, samtali og samveru.
„Sólarpönk er hugmyndafræði og hreyfing sem snýst um að skapa og ímynda sér heim þar sem við lifum í sátt við náttúruna, samfélagið og okkur sjálf. Á hátíðinni gefst tækifæri til að virkja ímyndunaraflið og sköpunarkraftinn, hlusta á reynslusögur og eiga í samtali um heiminn sem við viljum byggja. Lögð verður áhersla á að fjalla um það sem vel er gert í samfélaginu og sagt frá verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á fólk og náttúru,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.
Þátttakendur koma úr ólíkum áttum samfélagsins, menningu og listum, skapandi greinum, nýsköpun, viðskiptalífinu, umhverfis- og grasrótarhreyfingum. Listrænir viðburðir verða samofnir dagskránni og gestum boðið að vera virkir þátttakendur í gegnum samtal og samsköpun. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá hátíðarinnar:
Hátíðin hefst 19:30 föstudaginn 13. mars og þá um kvöldið hefst skráning á vinnustofur og listasmiðjur helgarinnar. Á föstudagskvöldinu verður róleg stemming, samvera og spjall. Á laugardaginn hefst dagskráin kl 11:00 með örerindum og kynningum á vinnustofum og listasmiðjum. Boðið verður upp á fría súpu í hádeginu sem An-Katrien reiðir fram. Kl. 12:30 verður málþing, umræður og spjall um Sólarpönk og hvaða erindi þessi hugmyndafræði eigi við samtímann.
Dagskrá málþings:
– Hvað er að vera Sólarpönkari? Diana Sus & Þuríður Helga Kristjánsdóttir
– Vistrækt og Sólarpönk: Hildur Dagbjört frá Gróanda & Ingólfur og Indíana frá Sveitin okkar
– Leiðin út er inn: Jóhanna Vilhjálmsdóttir & Stefanía Ólafsdóttir
– Listir, menning og annað pönk: Jón Haukur Unnnarsson & Þórgnýr Dýrfjörð
– Framtíðin, nýsköpun og að sjá tækifæri: Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir & Hjálmar Gíslason
Kl: 15:00 – 17:00 Listasmiðjur og vinnustofur í Deiglunni, Listasafninu á Akureyri, Sjálfsrækt og Kaktus.
Kl: 17:00 Jarðarganga í Lystigarðinum á Akureyri undir leiðsögn Þórhildar Fjólu Kristjánsdóttur.
Á sunnudaginn 15. mars hefst dagskráin kl 11 og stendur til um 13. Dagskráin mun einkennast af samsköpun, samveru og uppskeru ávaxta listasmiðja og vinnustofa.
Hátíðin er styrkt af Akureyrarbæ, Gilfélaginu, KEA, Skrauta, SUNN og Veglyndi. Öll velkomin – frítt inn á alla hátíðina. Aðstandendur hátíðarinnar eru Diana Sus og Þuríður Helga.


COMMENTS