Íþróttamiðstöð Þórs verður 4.600-5.300 fermetrarLjósmynd/Akureyri.is

Íþróttamiðstöð Þórs verður 4.600-5.300 fermetrar

Í dag var undirritað samkomulag um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs. Með samkomulaginu er sett af stað vinna við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs og í kjölfarið gerður samningur um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, þar segir einnig:

Í íþróttamiðstöðinni er gert ráð fyrir íþróttasal með áhorfendabekkjum og aðstöðu eins og best verður á kosið fyrir leiki í efstu deild í meistaraflokki í körfubolta og handbolta, sem og mótahald yngri flokka. Önnur rými, s.s. áhaldageymsla og stoðrými, sem fylgja íþróttasalnum verða í samræmi við þörfina sem fylgir íþróttasal af þessari stærð.

Í íþróttamiðstöðinni verður gert ráð fyrir lyftingasal, æfingaaðstöðu fyrir deildir Þórs auk forsals og afgreiðslu, félagssal, fundarrými og skrifstofum ásamt öðrum stoðrýmum.

Heildar stærð íþróttamiðstöðvarinnar mun liggja fyrir þegar frumhönnun hefur verið lögð fram en er áætluð frá 4.600m² og að hámarki 5.300 m². Þar af er íþróttasalur með um 2.300-2.500 m² gólfflöt.

COMMENTS