Opið fyrir meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar

Opið fyrir meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar

Yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, þar segir einnig:

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar. Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Framboðsfrestur er til hádegis 10. apríl 2026. Tilkynning um hvar og hvenær verði tekið á móti framboðum verður auglýst þegar nær dregur.

COMMENTS