Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, fór fram dagana 1.–28. febrúar. Markmið verkefnisins er að hvetja til daglegrar hreyfingar í vinnustöðum, skólum og meðal eldri borgara. Nokkur lið af Norðurlandi eystra náðu verðlaunasætum í keppni ársins.
Hreystihópar 60+
- Félag eldri borgara Húsavík FEBHN – Lið B: 1. sæti í flokki 10-29 liðsmanna yfir fjölda hreyfidaga (28 dagar að meðaltali). Hópurinn hafnaði í 4. sæti í sama flokki yfir fjölda mínútna.
- Virk efri ár – Akureyri: 2. sæti í flokki 10-29 liðsmanna yfir fjölda mínútna (2.418,8 mínútur að meðaltali). Hópurinn hafnaði í 4. sæti í sama flokki yfir fjölda hreyfidaga.
- Eldri borgarar á Húsavík: 4. sæti í flokki 30-69 liðsmanna yfir fjölda hreyfidaga og 4. sæti í sama flokki yfir fjölda mínútna.
Grunnskólakeppni Keppt var um hlutfallslegan fjölda daga miðað við heildarfjölda nemenda í fjórum flokkum.
- Giljaskóli: 1. sæti í flokki skóla með 300-499 nemendur (7,98 dagar).
- Þelamerkurskóli: 3. sæti í flokki skóla með 90-299 nemendur (10,94 dagar).
- Þingeyjarskóli: 3. sæti í flokki skóla með 1-89 nemendur (11,69 dagar).
Framhaldsskólakeppni Keppt var um hlutfallslegan fjölda daga og mínútur miðað við nemendafjölda.
- Framhaldsskólinn á Laugum: 1. sæti í flokki skóla með 1-399 nemendur (2,45 dagar og 288 mínútur).


COMMENTS