Flytja lög samin samdægurs

Flytja lög samin samdægurs

Á föstudaginn langa, þann 3. apríl, verður boðið upp á ókeypis lagasmiðjur í Tónlistarskólanum á Akureyri þar sem þátttakendur fá að semja eigið lag á einum degi og heyra það síðan lifna við á tónleikum í Deiglunni sama kvöld. Lagasmiðjurnar eru opnar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Það þarf hvorki að kunna tónfræði né hafa áður samið lag; markmiðið er fyrst og fremst aðskapa öruggt og skemmtilegt rými fyrir tónlistarsköpun, samvinnu og gleði. Farið verður yfir hvernig semja má lög með einföldum hætti sem meðalmaðurinn er ekki lengi að læra að syngja með.

Flammeus, sem er listamannsnafn Tuma Hrannar Pálmasonar, mun hjálpa lagahöfundum að ná tökum á handverkinu og þróa í því að semja (og klára) lög. Flammeus er akureyrskt tónskáld með mikla reynslu í lagasmíðum og tónflutningi. Hann var úrslitakeppandi í The Voice Ísland (2019), valinn besti nýliðinn á Iceland Airwaves (2019) og er nú í meistaranámi í Jazz Performance á rafbassa í Mannheim, Þýskalandi.

Smiðjurnar fara fram frá kl. 10 til 16 í Menningarhúsinu Hofi og kl 19:30 tekur við tónleikaviðburður í Deiglunni þar sem ný lög dagsins fá að hljóma fyrir gesti, vini og vandamenn á hlýrri samverustund. Salnum verður boðið að syngja öll splunkunýju lögin með, og því er ekki einungis um tónleika að ræða, heldur einnig samsöngsviðburð. Öllum er boðið, ungum sem öldnum, að koma og skapa saman
óviðjafnanlega stemningu.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri og Gilfélagið og er þátttaka ókeypis. Skráning er á lagasmidjur.flammeusmusic.com

Hver þátttakandi fær einn ókeypis boðsmiða á tónleikana um kvöldið, en umfram það eru miðar á tónleikana seldir hér: lagasmidjur.flammeusmusic.com/tonleikar

COMMENTS