Miðvikudagskvöldið 18. mars fer fram ritlistarkvöld Ungskálda á LYST í Lystigarðinum. Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16–25 ára sem hefur áhuga á ritlist og þátttaka er ókeypis. Þetta er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp eigin texta í notalegu og skapandi umhverfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ, þar segir einnig:
Ritlistarkvöldinu stýrir Margrét S. Höskuldsdóttir, sem hlaut nýverið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fyrir bókina Lokar augum blám sem kom út haustið 2025. Margrét hefur verið umkringd bókum frá barnæsku og hefur alla tíð haft mikinn áhuga á bókmenntum og ljóðum. Fyrsta skáldsaga hennar, Dalurinn, kom út sumarið 2022. Önnur bók hennar, Í djúpinu, kom út árið 2024 og hefur þýðingarétturinn þegar verið seldur til Þýskalands.
Skráning og nánari upplýsingar má finna hér.


COMMENTS