MIMRA á tónleikaferðalagi – 11 tónleikar á 13 dögum

MIMRA verður ásamt hljómsveit á tónleikaferðalagi í sumar til að kynna nýútkomna plötu sína Sinking Island. Tónlist MIMRU er í alternative folk stíl, orchestral pop á stórum skala en samt sem áður einlæg, vönduð og lætur engann ósnortinn. Hljómsveitina skipa þrjár öflugar tónlistarkonur. María Magnúsdóttir söngkona, lagahöfundur og hljómborðsleikari, Sylvía Hlynsdóttir (Bjork, Jónas Sig) spilar á trompet og synta og Jara Holdert spilar á gítar og syngur. Jara sjálf er stórkostlegt söngvaskáld frá Hollandi og mun hita upp fyrir hljómsveitina á tónleikum þeirra. Tónlist MIMRU er fullkomin fyrir aðdáendur Feist, Bat for Lashes og Laura Mvula og tónlist Jöru ber keim af söngvaskáldum 7. áratugarins; Bob Dylan og Joni Mitchell.

Platan Sinking Island kom út í fyrra og hefur verið vel tekið, platan er heildstætt verk út í gegn þar sem MIMRA sá um upptökustjórn og hljóðhönnun. Textar plötunnar eru að miklu leiti sprottnir frá reynslu Maríu eftir sambandsslit þegar fyrrverandi maður hennar kom út sem trans kona. Platan er fáanleg á geisladisk og vinyl sem og gegnum allar helstu streymiveitur.

,,She carves her own space between electronic vibes and multi-layered classic arrangements for a full band. From the very first song of the album, Our Great Escape, MIMRA grabs attention with her wide range of voice and deep passion in personal lyrics. If you look for being touched by music, you will get it here.“ – Rvk on Stage

Hljómsveitin ásamt fylgisveinum verður á roadtrip ferðalagi um Ísland á meðan á tónleikaröðinni stendur. Hægt verður að fylgjast með hópnum á ferðalaginu gegnum skámerkið #mimraroadtriptour og á facebook event síðu hópsins.

Fylgið MIMRU og JÖRU hér:

MIMRA
www.mimramusic.com
www.facebook.com/mimramusic
www.instagram.com/mimramusic

JARA
www.jara.nu
www.facebook.com/listentojara
www.instagram.com/listentojara

9.júní – KirkjuhvollKirkjubæjarklaustur
10.júní – Beljandi Brugghús , Breiðdalsvík *
12.júní – Já Sæll Ehf FjarðarborgBorgarfjörður Eystri
13.júní – Bláa KirkjanSeydisfjordur
14.júní – Græni HatturinnAkureyri
15.júní – Hótel Blanda, Blönduós
16.júní – Café RiisHólmavík
17.júní – EdinborgarhúsiðÍsafjörður
19.júní – Brúarás – Geo CenterBorgarfjörður
20.júní – Dularfulla búðin, Akranes
21.júní – Húrra, Reykjavík (ásamt Hljómsveit Unu Stef) 


UMMÆLI