A! Gjörningahátíð á Akureyri hófst í gærkvöldi í Deiglunni með gjörningi Árna Vil og Lísöndru Týru Jónsdóttur, Mötuð. Að honum loknum tóku við gjörningar Marte Dahl, Paper Cut, og Áka Frostasonar og Andro Manzoni, Takovo je Vrime, sem fram fóru í Listasafninu. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er nú í ellefta sinn og stendur fram á sunnudag. Ókeypis er inn á alla viðburði.
Hátíðin breytir Akureyri árlega í suðupott spennandi listviðburða og er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins á Akureyri og Listnámsbrautar VMA. Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni sem fer fram í Listasafninu, Hofi, Deiglunni og Mjólkurbúðinni.
Listafólkið sem tekur þátt að þessu sinni er: Árni Vil & Lísandra Týra Jónsdóttir, Marte Dahl, Áki Frostason & Andro Manzoni, Sunneva Kjartansdóttir, Ari Logn, Tianjun Li (Timjune), Drengurinn Fengurinn, Linde Rongen & Eydís Rose Vilmundardóttir, Fríða Katrín Bessadóttir, Hildur Elísa Jónsdóttir, Alysse Bowd, Kjersti Austdal, Tjátiljurnar. Verkefnisstjóri er Sara Bjarnason.


COMMENTS