Prenthaus

Áætlað að Skógarböðin við  Akureyri opni í byrjun næsta ársSkjáskot: N4

Áætlað að Skógarböðin við Akureyri opni í byrjun næsta árs

Áætlað er að nýr baðstaður sem ber heitið Skógarböðin opni við Akureyri þann 11. febrúar á næsta ári. Framkvæmdir hófust við Skógarböðin í október á síðasta ári en stærstu eigendur eru hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer. Þetta kemur fram í umfjöllun N4.

Í umfjöllun sjónvarpsstöðvarinnar N4 um málið segir að laugarsvæðið verði um 500 fm að stærð og muni samanstanda af tveimur laugum. Á svæðinu verður einnig þurrsána og kaldur pottur. Í húsnæði Skógarbaðanna verða búningsklefar, veitingasalur og afgreiðsla um 730 fm að stærða. Alls geta 200 gestir verið í böðunum í einu.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við þau Sigríði og Finn á N4

Sambíó

UMMÆLI