Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Akureyrskur spartlbakki fær styrk úr Frumkvöðlasjóði

MudBud hlaut 5 milljóna króna styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Sævar Þröstur Eysteinsson og Baldvin Ólafsson taka við styrknum

Akureyrska sprotafyrirtækið MudBud var á meðal styrkhafa úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka í ár. Átján verkefni hlutu styrk og nam úthlutunin samtals 70 milljónum króna. MudBud hlaut hæsta mögulega styrk, 5 milljónir króna.

MudBud er einkaleyfisvarinn, ergonomískur spartlbakki sem dregur úr líkamlegu álagi og stoðkerfissjúkdómum hjá fagfólki í málningariðnaði. Spartlsbakkinn, sem er hannaður af málarameisturum frá Akureyri, léttir álag á hendur, úlnliði og axlir fagmálara.

Þeir Þórir Hólmgeirsson og Sævar Þröstur Eysteinsson þróuðu vöruna en þeir fundu á eigin skinni þörf fyrir betra tól við spartlvinnu. Úr varð MudBud®, spartlbakki sem er hannaður með fagmanninn í huga. Undir honum er grip sem fellur vel í hendi og á honum er flái sem auðveldar að ná efninu og skafa umframefni af spaðanum. Á bak við bakkann liggur um fjögurra ára vinna, og hönnunin er nú vernduð á Íslandi, í Evrópu, Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum.

„MudBud varð til vegna þess að okkur fannst einfaldlega vanta betra verkfæri við spörtlun. Við höfum þróað hugmyndina út frá eigin reynslu sem málarar og styrkurinn frá Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka hjálpar okkur að taka næsta stóra skrefið, að klára framleiðsluhönnunina og koma vörunni á markað. Vonandi verður þetta dæmi um að góð og einföld hugmynd frá Akureyri geti átt erindi langt út fyrir Ísland,“ segir Þórir Hólmgeirsson.

Teymið á bak við MudBud er að mestu leyti norðlenskt. Baldvin Ólafsson bættist í hópinn í vor og sér um fjármögnun og markaðssókn. Ingólfur Guðmundsson og Kollgáta hafa unnið að vöruhönnuninni. Josh Klein, alþjóðlegur ráðgjafi sem býr á Akureyri er sömuleiðis hluti af teyminu og vinnur að því að koma vörunni á markað í Bandaríkjunum. Í vor tók MudBud þátt í Slipptökunni hjá Drift EA á Akureyri, þar sem viðskiptamódelið og kynning á MudBud voru slípuð.

„Nú snýst allt um að koma MudBud í framleiðslu. Styrkurinn hjálpar okkur að taka það skref og þaðan liggur leiðin í hillur verslana hjá fagsmásölum og stærri byggingavöruverslunum hér heima og erlendis,“ segir Þórir.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Mud Bud með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. nóvember 2026