Aðventa í Norðangarra – húslestur í hljóðheimi

Það er fastur hluti jóla hjá mörgum að lesa eða hlusta á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Fjalla-Bensi, forystusauðurinn Eitill og hundurinn Leó verða ljós lifandi í notalegu umhverfi skáldasafnanna í Davíðshúsi og Skriðuklaustri, heimilum Davíðs Stefánssonar og Gunnars Gunnarssonar 28. nóvember og 6. desember. Þar verður þetta sígilda bókmenntaverk flutt í anda gömlu húslestranna en þó með nýstárlegum hætti.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni Norðangarra, Minjasafnsins á Akureyri og Gunnarsstofnunar. Á honum er fléttað saman upplestri hinnar sígildu jólasögu Aðventu og lifandi hljóðheimi sem mótast með spuna í rauntíma undir lestrinum. Innblásturinn er sóttur til gömlu íslensku húslestranna, en áhrif orðanna eru dýpkuð með tónlist, líkt og í kvikmyndum. Aðventa verður lesin upp í heild sinni á meðan hljóðheimur er skapaður undir sögunni í rauntíma af tónlistarfólki Norðangarra. Þar mætast rödd og rými, spuni og texti í áhrifamikilli upplifun sem leiðir hlustendur í gegnum sögu hins sanna jólaanda: fórnfýsi, samkenndar, góðmennsku og vináttu.
Í kvikmyndum er tónlist markvisst notuð til að búa til stemningu. Á húslestrinum er ímyndunarafl áheyrenda virkjað til að gæða Fjalla-Bensa, Eitil og Leó lífi. Hughrif hlustenda verður kvikmyndin sjálf sem tónlist Norðangarra undirstrikar.
Listamennirnir sem koma fram undir heitinu Norðangarri eru Erla Dóra Vogler söng- og leikkona, Þórður Sigurðarson píanóleikari og Jón Þórsteinn Reynisson harmonikkuleikari. Þrautreynt tónlistarfólk sem komið hafa fram víða um land. Erla Dóra segir þetta um tilurð gjörningsins:
„Sum okkar í Norðangarra hafa hlustað á Aðventu fyrir hver jól í fleiri ár, jafnvel oftar en einu sinni. Ég er sjálf frá Egilsstöðum og hef elskað að mæta og hlusta á upplestur á Skriðuklaustri. Mér finnst fátt notalegra en að láta lesa fyrir mig og þeim mun betra ef það er lifandi flutningur! Þessi hugmynd þróaðist sem sagt út frá ást á sögunni, löngun til að lesa hana upp og því hve yndislega Jón Þorsteinn og Þórður geta spunnið tónlist saman.“
Húslestrarnir fara fram 28. nóvember í Davíðshúsi kl. 13 og 6. desember á Skriðuklaustir kl. 13. Viðburðurinn tekur um 2 og hálfan tíma í flutningi. Gestir eru hvattir til að hafa handavinnu meðferðis til að auka enn á húslestrarstemninguna.
Aðgangur ókeypis – Verið öll velkomin.
Tengdar greinar
Uppfært: 24. nóvember 2026





