MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Jólaljósin lýsa upp bæinn viku fyrr en vanalega

Eftir Ingólfur Stefánsson·
jolaljos-2000×1500-1
kaffid.is

Akureyrarbær hefur hafið uppsetningu jólaskrauts í bænum, viku fyrr en undanfarin ár. Ástæðan er sú að Jólatorgið á Ráðhústorgi opnar einnig viku fyrr en í fyrra. Kveikt verður á jólatrénu laugardaginn 21. nóvember klukkan 16. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

„Skammdegið hefur tekið yfir og þar sem snjórinn lætur enn bíða eftir sér hjálpa jólaljósin til við að lýsa upp bæinn og skapa notalega stemningu. Akureyrarbær hvetur fyrirtæki og rekstraraðila í miðbænum til að taka þátt í að skapa jólalega umgjörð með skreytingum og ljósum og leggja þannig að mörkum við að gera miðbæinn bjartari og líflegri á aðventunni,“ segir í tilkynningunni.

Nánari upplýsingar um opnunartíma Jólatorgsins má finna á jolatorg.is. Skemmtidagskráin verður birt þar fljótlega.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026