MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ævintýragarðurinn við Oddeyrargötu 17 opnar á laugardaginn

Eftir Hreinn Halldórsson·
image001 (1)
kaffid.is

Það er draumur hvers manns að skapa og miðla með öðrum. Með það í huga hef ég á síðustu árum skapað hin ýmsu verk sem eru staðsett í garðinum mínum. Garðurinn er því einkagalleríið mitt, lifandi undir berum himni þar sem lofthæðin er endalaus og lýsingin síbreytileg.

Meginuppistaðan í mínum verkum er gagnvarið timbur eða pallaefni sem myndar útlínur persóna og dýra. Verkin eru öll heilmáluð og oft með skrautkornum sem sett eru í blauta málninguna til að fá aðra ásýnd eða kalla fram önnur litaáhrif. Skreytiefni er mjög fjölbreytt bæði í efnisvali og lit og of langt mál að telja það allt upp en nefna má: Skipadúk (bræludúk), nælon bönd, bólsturnaglar, jólaskraut, kvenskart, haldföng og ýmsir gamlir nytjahlutir sem fengnir eru á nytjamörkuðum og fá nýtt hlutverk á verkunum. Þar sem öll verkin eru úti undir berum himni yfir sumarið er mikil viðhaldsþörf sem ég sinni yfir veturinn ásamt því að skapa ný verk. Flest verkin tengjast gömlum klassískum ævintýrapersónum í bland við þjóðlegan fróðleik. Ævintýragarðurinn er því nafnið sem ég nota til að lýsa verkunum í sínu náttúrulega umhverfi sem er garðurinn við húsið mitt að Oddeyrargötu 17 á Akureyri.

Ég hef fundið fyrir áhuga fólks að skoða verkin mín og varð það til þess að fyrir fjórum árum opnaði ég aðgang að garðinum mínum. Sumarið sem nú fer í hönd er því fimmta sumarið í röð þar sem Ævintýragarðurinn er opinn og eins og áður er aðgangur ókeypis og myndatökur leyfðar. Opnunartíminn er alla daga frá klukkan 10:00-20:00.

Ég tel að um helmingur gesta minna séu erlendir ferðamenn bæði á eigin vegum og eins í hópferðum en flestar ferðaskrifstofur sem fara með hópa í hringferð um landið heimsækja Ævintýragarðinn. Það hefur komið mér þægilega á óvart að stór hluti gesta minna eru eldri borgarar og því hef ég sett upp handrið á fjórum stöðum í garðinum til að auðvelda fólki umgengni. Við öll verkin er texti bæði á íslensku og ensku sem fjallar um viðkomandi verk. Í íslenska textanum er mjög oft hluti úr kvæði eða vísu og/eða sönglag sem flestir kannast við og fjallar þá um viðkomandi verk.

Ég hef verið með gestabók í gróðurhúsinu í garðinum og á síðasta sumri fylltust þrjár gestabækur af þökkum frá ferðamönnum alls staðar að úr heiminum. Sumt get ég reyndar ekki lesið því það er skrifað á kínversku eða tungumálum sem ég kann engin skil á.

En gaman engu að síður.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026