MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Fyrsta bók Mannkenndar komin í forsölu

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Mannkend, fyrsta íslenska bókaútgáfan sem sérhæfir sig í barnabókum um fötlunarfjölbreytileika, hefur hafið forsölu á fyrstu bók útgáfunnar, Lísu og Líó.

Markmið Mannkendar er að skapa sögur þar sem fötluð börn fá að vera í aðalhlutverki, með eigin styrkleika, drauma og áskoranir. Bækur sem gera börnum kleift að spegla sig í sögupersónum og kynnast um leið reynsluheimi annarra.

Lísa og Lío fjallar um einhverfa stúlku sem þarf að takast á við nýjar aðstæður og óvissu. Sagan er eftir þýska höfundinn Danielu Schreiter, sem er sjálf einhverf og kemur út í samstarfi við Einhverfusamtökin.

Áhætluð afhendin bókarinnar er í byrjun desember. Mannkend hefur verið hluti af Hlunninum hjá DriftEA á Akureyri. Í tilkynningu á samfélagsmiðlum DriftEA segir:

„Það er gaman að fylgjast með hugmyndum verða að veruleika. Við hjá Drift EA erum ánægð með að hafa fengið að taka þátt í vegferð Mannkenndar og styðja við framgang verkefnisins.“

Hægt er að panta bókina í forsölu á www.mannkennd.is

Tengdar greinar

Uppfært: 20. nóvember 2026