MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Ákall for­eldra á samfélagsmiðlum

Eftir Kristín Kjartansdóttir·
6aec75d362708-1
kaffid.is

Á hvaða tímapunkti verður hlustað á foreldra sem kalla eftir aðstoð fyrir börnin sín, fyrir fjölskyldulífið og fyrir framtíð barna með greiningar eða fatlanir?

Hversu oft þurfa foreldrar að biðja um hjálp áður en einhver hlustar? Hversu mörg erindi þarf að senda, hversu oft þarf að vekja athygli á stöðunni á samfélagsmiðlum og hversu oft þurfa foreldrar að stíga fram í fjölmiðlum til þess að raunveruleg viðbrögð fáist?

Það virðist ekki vera hlustað þegar erindi eru send inn. Það virðist ekki vera hlustað þegar foreldrar kalla eftir úrræðum á samfélagsmiðlum og það virðist heldur ekki nægja að koma fram í fjölmiðlum og segja frá þeirri stöðu sem fjölskyldur búa við.

Hvaða leið er þá vænlegust til árangurs? Er hún yfirhöfuð til? Eða er hún kannski aðeins til á blaði, í formi rafræns skjals sem þarf að vera til samkvæmt verkferlum, en enginn fylgir eftir þegar raunverulega reynir á?

Þegar ég opnaði samfélagsmiðla í morgun var það fyrsta sem blasti við mér spurning frá foreldri: Hvar á landinu er best að búa með börn með fatlanir? Hvar fæst viðunandi þjónusta?

Þessi spurning situr eftir. Hún ætti að vekja okkur öll til umhugsunar. Foreldrar ættu ekki að þurfa að velta því fyrir sér í hvaða landshluta börnin þeirra eigi möguleika á viðunandi þjónustu. Aðgengi að nauðsynlegri þjónustu ætti ekki að ráðast af búsetu, fjárhag eða því hversu vel foreldrar berjast fyrir réttindum barna sinna.

Ef um beinbrot væri að ræða væri barn ekki sett á biðlista ásamt hundruðum annarra barna og látið bíða árum saman eftir viðeigandi meðferð. Þá væri brugðist við. En þegar um er að ræða greiningar, fatlanir eða aðrar áskoranir sem sjást ekki endilega utan á barninu virðist réttlæting fyrir bið vera allt önnur. Börn og fjölskyldur þeirra geta setið á biðlistum mánuðum og jafnvel árum saman, þrátt fyrir að þörfin fyrir aðstoð sé brýn.

Á meðan biðinni stendur heldur lífið áfram

Fjölskyldulífið fer ekki í bið. Skólasókn fer ekki í bið. Félagslífið, dagleg rútína og allar þær áskoranir sem fylgja því að sinna þörfum barns með auknar stuðningsþarfir hverfa ekki á meðan beðið er eftir úrræði.

Barnið heldur áfram að vaxa og þroskast. Tækifæri til stuðnings, þjálfunar og snemmtækrar íhlutunar líða hjá. Foreldrarnir halda áfram að sinna barninu, oft á sama tíma og þeir þurfa að halda utan um samskipti við skóla, heilbrigðiskerfi, félagsþjónustu og aðrar stofnanir. Þeir þurfa að útskýra stöðuna aftur og aftur, sækja um, bíða, fylgja eftir og minna á að þörfin sé enn til staðar.

Hvað með fjölskylduna í heild? Hvað gerist þegar einn eða báðir foreldrar þurfa stöðugt að vera málsvarar barnsins síns, jafnvel þegar þeir eru orðnir úrvinda? Hvað gerist þegar systkini, foreldrar og allt heimilislífið þarf að aðlagast kerfi sem á að vera til staðar til að styðja við fjölskylduna en virðist þess í stað kalla á sífellt meiri baráttu?

Samfélagsmiðlar eru orðnir vettvangur þar sem foreldrar leita hverjir til annars, deila reynslu og spyrja spurninga sem ættu í raun að eiga heima hjá þeim stofnunum sem bera ábyrgð á þjónustunni. Þegar foreldrar þurfa að spyrja almenning hvar á landinu sé hægt að fá viðunandi þjónustu fyrir börnin sín hljótum við sem samfélag að vera á villigötum.

Taka þarf mið af því að foreldrar eru ekki að biðja um forréttindi. Þeir eru ekki að biðja um neitt umfram það sem börnin þeirra þurfa. Þeir eru einfaldlega að kalla eftir þjónustu, stuðningi og raunhæfum úrræðum sem gera börnum kleift að taka þátt í samfélaginu og fjölskyldum þeirra kleift að lifa sem eðlilegustu fjölskyldulífi.

Það er brýnt að hlusta áður en foreldrar eru komnir á endastöð. Það þarf að bregðast við áður en aðstæður verða óviðráðanlegar. Það þarf einnig að muna að á bak við hvert erindi, hverja umsókn og hvert nafn á biðlista er barn og fjölskylda sem lifir með afleiðingum þess að ekkert gerist.

Hversu hátt þarf að hrópa eftir aðstoð áður en einhver hlustar? Hversu lengi eiga börnin okkar að bíða eftir því að samfélagið bregðist við?

Höfundur starfar sem sérkennari.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026