MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Tvær milljónir í verðlaun: Gulleggið heldur viðburð á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
driftea
kaffid.is

Tvær milljónir króna eru í verðlaun í Gullegginu, stærstu frumkvöðlakeppni Íslands, og nú hefur verið opnað fyrir skráningar. Í tilefni þess verður haldið Happy Hour í Drift EA á Akureyri fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16–18 þar sem fólki gefst tækifæri til að kynnast keppninni betur.

Gulleggið gefur einstaklingum og teymum tækifæri til að þróa viðskiptahugmyndir, öðlast nýja þekkingu og tengjast fólki úr nýsköpunarumhverfinu. Það er þó engin krafa um að mæta með viðskiptahugmynd eða vera tilbúin/n að taka þátt í keppninni. Viðburðurinn er líka kjörið tækifæri fyrir þau sem vilja fá innblástur, kynnast nýsköpun og sjá hvaða möguleikar eru í boði.

Að viðburðinum standa KLAK – Icelandic Startups, Drift EA, Háskólinn á Akureyri og Hraðið – miðstöð nýsköpunar. Gestir fá tækifæri til að fræðast um Gulleggið, hvernig keppnin fer fram og þau tækifæri sem þátttaka getur skapað. Léttar veitingar verða í boði og öll áhugasöm eru velkomin.

Hvar og hvenær?

  • Staður: Drift EA, Strandgata 1, Akureyri
  • Dagsetning: Fimmtudagurinn 19. nóvember
  • Tími: Kl. 16:00–18:00

Tengdar greinar

Uppfært: 18. nóvember 2026