MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Akureyrarbær hlaut heiðursskjal Golfsambands Íslands

Eftir Ingólfur Stefánsson·
499A1153
Frá vinstri: Jón Steindór Árnason, gjaldkeri GSÍ, Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ, Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi á Akureyri, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, og Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar. Mynd: Golf.is· kaffid.is

Akureyrarbær hlaut heiðursskjal Golfsambands Íslands þann 7. nóvember á formannafundi GSÍ. Heimir Örn Árnason tók við skjalinu fyrir hönd bæjarins, en viðurkenningin er veitt sveitarfélagi sem hefur skarað fram úr með stuðningi sínum við golfhreyfinguna á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Golfsambands Íslands.

„Með afhendingunni þakkar GSÍ Akureyrarbæ fyrir áratuga farsælt samstarf og mikilvægt framlag til uppbyggingar golfíþróttarinnar á Norðurlandi. Bærinn hefur með markvissri stefnu og fjárfestingum skapað aðstæður sem styðja við golfiðkun fólks á öllum aldri,“ segir í tilkynningunni.

Í ræðu á fundinum var sérstaklega vakin athygli á umfangsmiklum endurbótum á Jaðarsvelli sem ná aftur til ársins 2007. Þar má nefna endurbyggingu flata, endurbætur á teigum og fjárfestingu í vökvunarkerfi sem stuðlar að auknum gæðum og rekstraröryggi.

Nánar á vef Golfsambands Íslands.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026