Akureyrarbær og Súlur Vertical hafa gert samning um stuðning við fjallahlaupið Súlur Vertical á árunum 2026–2028. Markmiðið er að efla og þróa viðburðinn til lengri tíma. Hlaupið fer fram um verslunarmannahelgi ár hvert á Akureyri. Tilkynnt var um saminginn á vef Akureyrarbæjar.
Samningurinn tekur einnig til svonefnds þríleiks Súlur Vertical, sem auk fjallahlaupsins samanstendur af skíðagöngukeppni og hjólreiðamóti. Akureyrarbær styður við framkvæmd viðburðanna meðal annars með vinnuframlagi, ráðgjöf, öryggis- og kynningarmálum. Alls er árlegt framlag Akureyrarbæjar metið á 1.992.000 krónur.
Skíðagöngukeppni Súlur Vertical fer fram laugardaginn 28. febrúar í Kjarnaskógi og nágrenni. Boðið verður upp á þrjár vegalengdir. Nánari upplýsingar skíðagöngukeppnina eru á www.sulurvertical.is.


COMMENTS