Ungmennafélag Akureyrar (UFA) gerði á dögunum samstarfssamninga við nokkur fyrirtæki vegna Akureyrarhlaupsins. Gerður var samstarfssamningur við atNorth til næstu þriggja ára. Að auki var samið við Altis sem selur meðal annars Mizuno íþróttafatnað og T-plús sem veitir verðlaunafé fyrir brautarmet í Akureyrarhlaupinu líkt og fyrri ár.
Hlaupinu, sem verður haldið í 34. sinn 3. júlí næstkomandi, hefur verið gefið nafnið Akureyrarhlaup Mizuno og atNorth og er markmið hlaupahaldara að efla viðburðinn enn frekar og gera hann að einum af hápunktum hlaupasumarsins á Norðurlandi.
Líkt og undanfarin ár er boðið upp á þrjár vegalengdir: 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót. Rás- og endamark verður við menningarhúsið Hof og hlaupaleiðin liggur um Eyrina og meðfram pollinum á Akureyri og hentar því mjög vel fyrir bæði byrjendur og lengra komna.
„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við þessi frábæru fyrirtæki. Við viljum leggja áherslu á að efla Akureyrarhlaup sem almenningshlaup og fjölskylduviðburð. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem skipuleggjendur að eiga trausta og framsækna samstarfsaðila sem deila okkar sýn um að byggja upp öflugan og fjölbreyttan viðburð fyrir alla.“ segir Rannveig Oddsdóttir hjá UFA.
„Við í atNorth erum stolt af því að styðja við Akureyrarhlaupið og hlökkum til að taka þátt í þessum skemmtilega og hvetjandi viðburði með starfsfólki okkar og samfélaginu hér á norðurlandi. Okkur finnst afar jákvætt að geta hvatt til hreyfingar og heilsusamlegs lífstíls. Þetta eru gildi sem við viljum standa fyrir. Við ætlum að hvetja okkar starfsfólk til að taka þátt og hvetjum önnur fyrirtæki til þess sama. “ segir Árni Björnsson, hjá atNorth.


COMMENTS