MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Allar snjóbyssur komnar í gang í Hlíðarfjalli

Eftir Ingólfur Stefánsson·
default
default· kaffid.is

Allar sjóframleiðslubyssur eru nú komnar í gang í Hlíðarfjalli. Í vikunni hefur kólnað í fjallinu eftir hlýindatíð og útlit er fyrir frost næstu daga og jafnvel snjókomu.

„Við biðum eftir að frost myndi haldast stöðugt sem nú er útlit fyrir að verði næstu daga. Stefnan er að keyra framleiðslu næstu sólarhringa meðan veður leyfir og fókusinn settur á neðri hluta svæðisins eins og er,“ segir í tilkynningu Hlíðarfjalls.

Tæpur mánuður er nú í áætlaðan fyrsta opnunardag í Hlíðarfjalli en stefnt er á að opna brekkurnar 10. desember næstkomandi klukkan 15:00.

Tengdar greinar

Uppfært: 12. nóvember 2026